Ukulele bassinn frá Kala er tímamótauppfinning, en um er að ræða bassa með 50cm háls (20″) sem er með sama raddsvið og hefðbundinn bassi. Hann er stilltur í hefðbundinni bassa stillingu, E-A-D-G, en hefur strengi úr svokölluðu „polyurethane“ gúmmí. Það er sönn ánægja að spila á u-bassann, hvort heldur sem er á æfingu, upptöku eða tónlistarflutning.
Í eftirfarandi myndbandi talar Mike Upton frá Kala fyrirtækinu um einkenni, uppfinningu og þróun ukulele bassans:
http://www.youtube.com/watch?v=rj99q5R2cBs
Ukulele bassinn kemur í þrem mismunandi gerðum eftir viðartegund: spruce, mahogany og acacia. Hægt er að fá bæði hljóðfæri með böndum (fretted) og án banda (fretless) í hverri viðartegund fyrir sig. Spruce týpan með böndum er líka til fyrir örvhenta (LH).