Heimstónlist á vaxandi fylgi að fagna og í dag kynnumst við tónlistarhefðum ólíkra menningarheima sem aldrei fyrr. Hljóðfæraverslunin Sangitamiya var stofnuð til þess að svara leit fólks í þessar mismunandi tónlistarhefðir. Við bjóðum upp á mikið úrval hljóðfæra allsstaðar að úr heiminum og komum til með að bjóða upp á kynningar og kennslu á þessi hljóðfæri og fræðsluefni um hljóðfærin og þær tónlistarhefðir sem þau eru sprottin upp úr.
Aðalhvatamaðurinn að stofnun búðarinnar var hugsjóna- og listamaðurinn Sri Chinmoy (1931-2007). Hann vann alla sína ævi að framgangi friðarhugsjónarinnar meðal annars í gegnum tónlist, en á yfir 800 friðartónleikum um allan heim spilaði hann jafnan eigin tónsmíðar á mörg ólík hljóðfæri frá mismunandi menningarheimum.
Starfsmenn verslunarinnar eru flestir tónlistarmenntaðir. Sangitamiya býður því upp á tónlistarkynningar og flutning í skólum og við ýmis önnur tækifæri, sem nú þegar hafa fengið góðar undirtektir.
Hljóðfæri
Í Sangitamiya er hægt að finna alla hljóðfæraflokka, hvort heldur sem er slagverks-, strengja- eða blásturshljóðfæri. Af þeim fjölmörgu hljóðfærum sem fólki stendur til boða í búðinni má nefna:
Slagverkshljóðfæri Marimbur, xýlafónar, og klukkuspil; kínversk og indónesísk gong, symbalar og bjöllur; afrískar djembe, údú og vatnstrommur; indverskar tabla, mridangam, madal og sjávartrommur; perúsk cajon; kúbanskar bongó, güiro og maracas; pakístanskar gongtrommur, batík og átthyrndar rammatrommur; tyrkneskar og egypskar darbouka; egypskar bendir; írskar bodhran; japanskar daiko og blævængstrommur; karabískar stáltrommur; þýskar tungutrommur og sansúlur; sem og nepalskar, tíbetskar og indverskar hljóðskálar, auk bandarískra krystalskála.
Strengjahljóðfæri Bandarísk ukulele, strumstick og banjo; gítarar; sænskar lýrur; íslensk kantele og jarðhörpur; keltneskar hörpur; þýsk mandólín; grísk bouzouki; rúmönsk psalter, dúlcimer og barnahörpur; kínversk ehru, gu-zheng og rúan; mongólsk morin khuur; vietnömsk dantram; rússneskar balalaikur; indverskir sítarar; bólívísk charango; og kólumbísk tiple og cuatro.
Blásturshljóðfæri Skoskar sekkjapípur; írskar þverflautur og tinflautur; keltneskar okkarínur og uillean-pípur; breskar og þýskar munnhörpur; kínverskar hu-lu-si flautur og sheng munnorgel; indversk shenai, bansúri, harmoníum og shruti box; ítalskar concertínur; moldavískar tvíflautur; armenískar dúdúk; bólivískar quena; vietnamskar og evrópskar munngígjur; sem og japanskar sakuhachi flautur.
Önnur hljóðfæri eins og syngjandi sagir, melódíkur, orkugjöll, vindgjöll, vatnsfuglar, hestar, fílar, uglur, höfrungar, froskar, og sveiflurör.
Aukahlutir eins og strengir í öll hljóðfærin, pokar, töskur, axlabönd, stillitæki, stillilyklar, taktmælir, sleglar, trommuskinn, og rakaormar.
Kennsluefni – bækur og DVD-myndbönd.